Leiðsögn um heimili Ingibjargar og Jóns
Í tilefni af endurgerð íbúðar Ingibjargar Einarsdóttur og Jóns Sigurðssonar á 3ju hæð hússins verður leiðsögn um sýninguna næstu sunnudaga frá kl 12 til 13.
Halla Benediktsdóttir, umsjónarmaður mun veita gestum og gangandi innsýn í heimili þeirra hjóna eins og það var um 1860, en eftir verulega vinnu á liðnu ári er íbúðin nú að mestu leyti eins og hún var á þeim tíma.
Allir velkomnir