18.4.2024

Auglýst eftir umsóknum um dvöl í íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn 2024–2025

Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, samkvæmt reglum um hús Jóns Sigurðssonar, er laus til afnota frá 21. ágúst 2024 til 19. ágúst 2025. Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu Alþingis eigi síðar en þriðjudaginn 23. apríl næstkomandi.

Fræðimenn, sem hyggjast stunda rannsóknir eða vinna að verkefnum í Kaupmannahöfn, geta sótt um afnot af íbúðinni, sem er á 2. hæð Jónshúss. Íbúðin er tveggja herbergja og fylgir henni allur nauðsynlegasti heimilisbúnaður. Afnotin eru endurgjaldslaus en þeim sem fá úthlutað ber þó að greiða fyrir þrif íbúðarinnar og rekstrarkostnað, alls kr. 75.000. Nánari upplýsingar um fræðimannsíbúðir er að finna á vef Jónshúss.

Dvalartími í íbúðinni fer eftir umfangi verkefnis og öðrum atvikum en er þó að jafnaði fjórar vikur. Úthlutunarnefnd ætlast til að dvalargestir nýti úthlutaðan tíma sinn að fullu við störf í Danmörku. Við úthlutun íbúðarinnar er höfð hliðsjón af eftirfarandi atriðum:

1. Að verkefnið hafi fræðilegt eða hagnýtt gildi og þyki áhugavert.

2. Að umsókn sé vandlega unnin.

3. Að sem eðlilegust skipting sé milli kynja og fræðigreina.

4. Að verkefnið verði ekki unnið annars staðar en í Kaupmannahöfn eða nágrenni.

Höfð er hliðsjón af því hvort sótt er um dvöl í fyrsta skipti en þegar umsækjendur eru jafnsettir skulu þeir ganga fyrir sem sækja um dvöl í fyrsta skipti.

Úthlutunarnefnd ráðgerir að ljúka störfum fyrri hluta maí.

Umsóknir um íbúðina skulu vera á sérstöku eyðublaði sem nálgast má hér og sendist, ásamt ferilskrá og nánari verkefnislýsingu, á netfangið jonshus@althingi.is.