Ingibjörg Einarsdóttir
Haustið 1845 voru Ingibjörg Einarsdóttir og Jón Sigurðsson gefin saman í hjónaband í Dómkirkjunni í Reykjavík. Þá var hann 34 ára en hún 41 árs.
Sama ár stofnuðu þau heimili í Kaupmannahöfn. Hjónin bjuggu á þremur stöðum í Kaupmannahöfn áður en þau fluttu í íbúðina við Øster Voldgade (Jónshús) árið 1852, en þar bjuggu þau til æviloka.
Íslendingar búsettir í Kaupmannahöfn söfnuðust reglulega saman á heimili Ingibjargar og Jóns til að ræða málin og njóta gestrisni þeirra.
Sjá nánari upplýsingar um Ingibjörgu Einarsdóttur, meðal annars sendibréf með rithönd hennar, á vefnum jonsigurdsson.is