23.10.2019

Aðalfundur Íslendingafélagsins

Íslendingafélagið í Kaupmannahöfn, boðar til aðalfundar félagsins:

miðvikudaginn 30. október 2019, kl. 20:00

Aðalfundurinn verður haldinn í:

Jónshúsi

Øster Voldgade 12

1350 København K

Fundardagskrá verður með hefðbundnu sniði samkvæmt 7. grein samþykkta félagsins.

Samkvæmt 5. grein samþykkta félagsins, hafa einungis skuldlausir félagsmenn frá síðasta reikningsári (2018 til 2019) atkvæðisrétt og kjörgengi á aðalfundi. Hverju árgjaldi fylgir eitt atkvæði.

Dagskrá:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.

2. Skýrsla um starfsemina á liðnu ári/stjórnartímabili.

3. Reikningar lagðir fram.

4. Kosningar í stjórn og nefndir.

5. Kosning endurskoðanda (tveir og einn til vara).

6. Ákvörðun árgjalda.

7. Önnur mál.

Tillögur að lagabreytingum er hægt að senda á netfangið: info@islendingafelagid.dk, í síðasta lagi 16. október nk.

Léttar veitingar eftir fundinn.

Allir velkomnir og við vonumst til að sjá sem flesta.

Stjórnin