• 6.desember 2018
    Opnun sýningar

5.12.2018

Alþingi býður til opnunar nýrrar sýningar í Jónshúsi.

Alþingi býður til opnunar nýrrar sýningar í Jónshúsi.

Heimili Ingibjargar og Jóns.
Miðstöð Íslendinga í Kaupmannahöfn 1852 - 1879.

Boðið verður upp á jólaglögg og eplaskífur. 
Kórarnir sem hafa aðstöðu í Jónshúsi munu syngja jólalög.

Fimmtudaginn 6. desember kl. 17. - 20.

Allir velkomnir!

Heimili Ingibjargar Einarsdóttur og Jóns Sigurðssonar er endurgert á grundvelli heimilda um líf þeirra hjóna í Kaupmannahöfn, byggingasögulegra rannsókna á íbúðinni sjálfri auk sagnfræðilegra rannsókna á heimilislífi um miðbik 19. aldar í Kaupmannahöfn.

Á sýningunni er sjónum beint að heimili hjónanna sem miðstöðvar Íslendinga og þætti Jóns Sigurðssonar í sjálfstæðisbaráttunni.

Þjóðminjasafn Íslands annast sýningarstjórn fyrir hönd Alþingis.

Hér er hægt að sjá myndir frá framkvæmdunum.