• Bókasafn

10.1.2018

Bókasafnið

Nú er búið að skrá allar bækurnar sem til eru í Jónshús er eru alls 8739 bækur.

Flestar bækurnar er að finna á bókasafninu sem er staðsett í kjallara hússins. Þar er að finna gott úrval af gömlum og nýjum bókum. 

Hér er hægt að skoða hvaða bækur eru til og hvar þær eru að finna í húsinu. 

Bókasafnið er opið á opnunartíma Jónshúss. Einnig er hægt að taka bækur að láni og skila bókum þegar viðburðir eru í húsinu.

Á hverju ári eru keyptar nýjar bækur.  Bókasafnið á mikið af velunnurum og endurnýjast bókasafnið fyrst og fremst af bókagjöfum.

IMG_0563

Bókasafnið tekur á móti nýlegum íslenskum bókum. 

Mikið er til af bókum og eru bækur á öllum hæðum hússins.  Þar sem gamla skráningarkerfið var ekki lengur virkt, var farið í það verkefni að skrá bækurnar í húsinu og nú er búið að skrá rúmlega 9000 bækur. 

IMG_0438

Hér er hægt að sjá hvaða bækur eru til og hvar þær eru að finna í húsinu.   Hægt er að nálgast bækur sem ekki eru geymdar á bókasafninu í kjallara hússins með því að hafa samband við umsjónarmann @halla@jonshus.is. 

Útlán

Bókasafnið virkar þannig að maður nælir sér í bók, skrifar sig á listann og skilar bókinni svo að lestri loknum. 

Bókasafnið er á Facebook