24.4.2026

Einar Már Guðmundsson hlýtur Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2026

  • Einar Már Guðmundsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir

Einar Már Guðmundsson hlýtur Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2026

Hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í Kaupmannahöfn í dag, 23. apríl, á sumardaginn fyrsta. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, setti hátíðina og afhenti Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta, sem að þessu sinni féllu í hlut skáldsins og rithöfundarins Einars Más Guðmundssonar. Í rökstuðningi fyrir verðlaunaveitingu þessa árs sagði m.a.:

IMG_7514

„Að mati forsætisnefndar Alþingis hefur Einar Már Guðmundsson lagt ríkulegan skerf af mörkum til að styrkja tengsl Danmerkur og Íslands. Einar Már dvaldi í Danmörku við nám og störf og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir ritstörf sín, meðal annars Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, Norrænu bókmenntaverðlaunin og Verðlaun Karenar Blixen. Einar Már er mikill sagnamaður með ljóðrænan og kraftmikinn stíl sem nýtur sérstakrar hylli og virðingar í Danmörku og er framlag hans til bókmennta og kynningar íslenskrar menningar í Danmörku þakkarvert. Fyrir það hlýtur Einar Már Guðmundsson Verðlaun Jóns Sigurðssonar árið 2026.“

IMG_7548

Aðalræðumaður á sumardaginn fyrsta var Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður. Í hátíðarræðunni fjallaði hún um sameiginlegan skjalaarf Íslands og Danmerkur. Í margar aldir deildu Íslendingar sögu sinni með Dönum og árið 1928 afhentu Danir mikið magn skjala úr stjórnsýslu og dómskerfi, auk fornbréfa og annarra mikilvægra skjala til Íslands, ómetanleg gögn til rannsókna á sögu Íslands. Tónlistarflutningur á hátíðinni var í höndum ungra íslenskra tónlistarkvenna sem búsettar eru í Danmörku. 

 

Fyrstar stigu á stokk þær Jana María Guðmundsdóttir söngkona og Sigurdís Sandra Tryggvadóttir píanóleikari, og því næst þær Helga Diljá Jörundsdóttir fiðluleikari og Ólína Ákadóttir píanóleikari.

IMG_7552

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, ásamt Helgu Diljá Jörundsdóttur fiðluleikara og Ólínu Ákadóttur píanóleikara.