Fræðimaður segir frá
Eyjólfur Eyjólfsson söngvari og þjóðfræðingur er þennan mánuðinn fræðimaður í Jónshúsi. Hann mun halda erindi þriðjudaginn 13. október og segja frá rannsóknum sínum um íslenska langspilið.
Langspilið er samtvinnað baðstofumenningu gamla bændasamfélagsins. Um svipað leyti og torfhúsum tók að fækka og lífshættir breyttust hafði áhugi fólks á hljóðfærinu þegar tekið að dvína. Blómaskeiði langspilsins lauk upp úr miðri 19. öld þegar nútímalegri hljóðfæri eins og harmóníum og harmónikkur urðu algengari almenningseign og í byrjun 20. aldarinnar tilheyrði langspilið liðnum tímum. Síðan þá hefur hljóðfærið að mestu vermt hillur og hvílt í glerkössum byggðasafna. Ekki er heldur um auðugan garð að gresja þegar kemur að heimildum um langspil og langspilsleik en þó eru nokkrar gamlar heimildir þar sem finna má forvitnilegar lýsingar á hljóðfærinu.
Eyjólfur hefur undanfarin misseri unnið að rannsóknarverkefni með það að markmiði að blása nýju lífi í gamla baðstofuhljóðfærið. Í samstarfi við Flóaskóla og FabLab-nýsköpunarsetrið á Selfossi hefur Eyjólfur þróað langspilsafbrigði fyrir leik- og grunnskóla. Hljóðfæri sem er fljótlegra í smíði og nýtist sem þverfaglegt kennslugagn. Mikilvægur hluti rannsóknarinnar eru langspilssmiðjur, vettvangsathugun þar sem leik- og grunnskólanemar læra undirstöðuatriðin í langspilsleik og söngva sungnir við eigin langspilsundirleik. Nemendum í Móðurmálsskólanum verður boðið upp á þátttöku í langsspilsmiðjum Eyjólfs á meðan á dvöl hans stendur í Jónshúsi. Á erindinu mun Eyjólfur einnig fjalla um hvernig langspilið nýtist til tónlistarsköpunar í víðara samhengi og spila nokkur tóndæmi.
