Guðni Már Harðarsson, prestur Íslendinga í Danmörku
Það var yndisleg stund í Esajaskirkju í gær, sunnudaginn 1. nóvember, þegar sr. Bryndís Malla Elídóttir prófastur setti Guðna Má Harðarson formlega í embætti sendiráðsprests íslenska safnaðarins í Danmörku.Fallegur söngur félaga úr Kammerkórnum Söku ómaði við undirleik Ólínu Ákadóttur. Þar sem messuna bar upp á allra heilagra messu gátu gestir kveikt á kertum í minningu látinna ástvina.Að athöfn lokinni var haldið í Jónshús þar sem boðið var upp á léttar veitingar í hátíðarsalnum. Við óskum Guðna Má innilega til hamingju með embættið og þökkum gestum kærlega fyrir komuna.
