18.4.2023

Hátíð Jóns Sigurðssonar

Stjórn Húss Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn býður til Hátíðar Jóns Sigurðssonar sem haldin verður í Jónshúsi í Kaupmannahöfn á sumardaginn fyrsta, 21. apríl 2022, kl. 17.

DAGSKRÁ

  • Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, setur hátíðina.
  • Íslensk tónlist í flutningi kvennakórsins Dóttur.
  • Peter Möllerrup, lögfræðingur flytur hátíðarræðu.
  • Íslensk tónlist í flutningi kvennakórsins Dóttur.
  • Forseti Alþingis afhendir verðlaun Jóns Sigurðssonar.
  • Kvennakórinn Dóttir syngur lag í tilefni sumardagsins fyrsta.

Auður Elva Jónsdóttir, formaður stjórnar Húss Jóns Sigurðssonar, stjórnar dagskrá.

Léttar veitingar að lokinni dagskrá

Vinsamlegast látið vita af komu með því að senda tölvupóst á halla@jonshus.dk