22.8.2017

Íslenskuskólinn

Laugardaginn 19. ágúst var skólasetning Íslenskuskólans. Eins og undanfarin ár munu íslensk börn fjölmenna í skólann á laugardögum.

Nemendahópnum verður skipt upp í tvær deildir.  

Yngri deild 0. - 3. bekkur, kennt er frá klukkan 9:15 til 11:45.

Eldri deild 4. - 9. bekkur, kennt er annan hvorn laugardag frá klukkan 12:00 til 16:00.

Það kom fram á skólasetningunni að eitthvað er um að foreldrar sem skráðu börn í skólann í sumar hafi ekki fengið svör, það er Kaupmannahafnar kommuna sem sér um það umsóknarferli.

Þeir sem ekki hafa fengið svör eða hafa einhverjar spurningar varðandi skólann er bent á senda Jórunni Einarsdóttur tölvupóst jorunneinars@gmail.com hún mun leitast við að aðstoða ykkur.