Íslenskuskólinn
Móðurmálskennsla
Íslensk börn í 0. til 9. bekk eiga möguleika á að sækja móðurmálskennslu á laugardögum í Jónshúsi.
Kennsla hefst með skólasetningu laugardaginn 17. ágúst kl. 11.00.
Kaupmannahafnar Kommunan býður börnum á grunnskólaaldri sem eru með lögheimili í Kaupmannhöfn upp á ókeypis móðurmálskennslu. Börn sem búa í ekki í Kaupmannhöfn hafa líka rétt á þessari kennslu, en þurfa sækja um hjá sinni Kommunu.
Nánari upplýsingar á heimasíðu kk.dk
Nemendum er skipt upp í þrjá hópa
- 0. og 1. bekk er kennt frá kl. 9:15 til 11:45.
- 2. og 3. bekk er kennt frá kl. 9:15 til 11:45.
- 4., 5., 6., 7., 8., og 9. bekkur er kennsla annanhvern laugardag frá klukkan 12:00 - 16:00.
Umsóknareyðubað um skólavist má nálgast hjá Íslenskuskólanum á laugardögum, en einnig á skrifstofu skólans sem barnið sækir.
Markmið Íslenskuskólans eru:
- Að æfa og örva íslenskukunnáttu nemenda í máli og skrift.
- Að veita nemendum aðgang að námsefni og upplýsingum á íslensku.
- Að vekja áhuga nemenda á íslenskri menningu, sögu og hefðum.
Kennarar leggja áherslu á fjölbreytt og skemmtilegt skólastarf, með skapandi verkefni og leik að leiðarljósi.
Netfang skólans er jorunneinars@gmail.com
Kennarar skólaárið 2019 til 2020 eru Jórunn Einarsdóttir og Marta Sævarsdóttir.