Jólastemning í Jónshúsi
Fjöldi fólks lagði leið sína á jólamarkað Jónshúss síðastliðinn sunnudag.
Gott og fjölbreytt úrval af ýmiskonar varningi var til sölu auk þess var bryddað upp á nokkrum nýjungum. T.d. var boðið upp á myndatöku sem margir nýttu sér. Hildur María ljósmyndari setti upp ljósmynda stúdíó í einu herbergi á safni hússins.
Á bókasafni í kjallara hússins var Christina Blin búin að koma sér fyrir með spilið sitt Newmero. Þar gafst börnum og fullornum tækifæri að prófa nýtt borðspil.
Eins og undanfarin ár voru stelpurnar í Kvennakórnum búnar að setja upp kaffihús. Margir sem lögðu leið sína í Jónshús gáfu sér góðan tíma og fengu sér t.d kleinur og heitt súkkulaði.
Nokkrar myndir frá því á sunnudaginn eru að finna hér.