14.3.2017

Jón Kalman Stefánsson kemur í heimsókn

Það verður sérstök ánægja að taka á móti Jóni Kalman á föstudagskvöldið. Heimsóknin hefst kl. 19.30 og mun Leshringurinn Thor II sjá um að kynna rithöfundinn, leiða spjall og stjórna fyrirspurnum úr sal.  

 Jón er flestum Íslendingum að góðu kunnur, ekki síst fyrir þríleikinn magnaða sem hófst með bókinni Himnaríki og helvíti og fjallar um um lítið pláss úti á landi um aldamótin. Einnig hafa síðustu tvær bækur hans, Fiskar hafa enga fætur og Eitthvað á stærð við alheiminn hlotið afbragðsdóma.  

JonKalmanStefansson-18[1][1][1]

176 Fiskar hafa enga fætur gerist að hluta til í Keflavík á áttunda og níunda áratugnum, en þar bjuggu einmitt hjónin í Jónshúsi á sama tíma og höfundurinn. Óhætt og skemmtilegt er frá því að segja að minningin um unglingsárin í pleisinu er ekki eins hjá þeim og honum …   

 Jón er stjarna í bókmenntaheiminum í Danmörku líkt og víða annars staðar. Við vonum að sem flestir noti tækifærið og kíki í heimsókn í Jónshúsið. Jón er ávallt skemmtilegur og liggur ekki á skoðunum sínum. 

Sem fyrr segir verður kvöldið með Jóni Kalmann föstudaginn 17. mars og hefst klukkan 19.30. Bækur verða ekki til sölu, en Jón áritar gjarnan bækur sem fólk kemur með.

Íslendingafélagið mun sjá fyrir veitingasölu.

Allir velkomnir

Nánar um viðburðinn hér.