29.1.2026

Karítas Hrundar Pálsdóttir

Karítas Hrundar Pálsdóttir fræðimaður í Jónshúsi er doktor í ritlist og frumkvöðull þegar kemur að ritun sagna á einföldu máli á Íslandi.

Hún hlaut viðurkenningu Íslenskrar málnefndar árið 2022 fyrir bækur sínar en sögur á einföldu máli geta stutt við inngildingu innflytjenda og aukið læsi þeirra á íslensku máli og menningu.Þá er Karítas höfundur fræðibókarinnar Readaptation Narratives in Sojourner Literature sem kom út hjá Palgrave Macmillan þar sem hún færir rök fyrir því að svokallaðar „snúbúabókmenntir“ um enduraðlögun fólks að heimalandinu eftir stutta búsetu erlendis ætti að viðurkenna sem bókmenntagrein hliðstæða „innflytjendabókmenntum“ um aðlögun fólks að nýju landi, erlendis.

Karítas mun segja frá bókmenntum á einföldu máli fyrir innflytjendur og bókmenntir um snúbúa – fólk sem flytur aftur heim eftir tímabundna dvöl erlendis.

Allir velkomnir
Aðgangur ókeypis