3.3.2016

Kvennakórinn Dóttir

Í gær hóf göngu sína nýr kvennakór,  kvennakórinn Dóttir.

Æft verður á miðvikudagskvöldum milli 19.30 og 21.30. Saman munu þær Svafa Þórhallsdóttir og María Ösp Ómarsdóttir stýra kórnum. 

Markmiðið er að vera með vikulega hittinga þar sem ungar konur koma saman og syngja lög sem þær hafa gaman af. Því má ætla að lagavalið verði fjölbreytt, rétt eins og hópurinn er fjölbreyttur.

 Er þetta eitthvað fyrir þig?

Inntökuskilyrðin eru; að vera ung kona og lagviss. 

Nánari upplýsingar veita þær Arna Tómasdóttir, Helga Nordfjord, Ragnhildur Ýr Jóhannsdóttir og svo stýrurnar Svafa Þórhallsdóttir og María Ösp Ómarsdóttir

Einnig er hægt að hafa samband með tölvupósti, kvennakorinn.dottir@gmail.com.