3.9.2026

Kynningarfundur fyrir fermingarbörn og foreldra í Jónshúsi.

Þann 7.september kl. 17:30 verður kynningarfundur fyrir fermingarbörn og foreldra í Jónshúsi.Er komið að fermingu?

Skráning er hafin í fermingarfræðslu Íslenska safnaðarins í Kaupmannahöfn.
Fermingarfræðsla íslenska safnaðarins í Danmörku fer að byrja!

-Kynningarfundur verður í Jónshúsi mánudaginn 7. september kl. 17:30, heitt á könnunni.Fræðslan er opin börnum sem eru í 7. eða 8. bekk (fædd 2013 eða 2012). Þau sem fara í gegnum fræðsluna hafa val um að fermast á vegum íslenska safnaðarins í fermingarmessu í 15. maí í Esajas kirke í Kaupmannahöfn eða fermast með íslenskum vinum í athöfn í söfnuði á Íslandi.

Fermingarfræðslan byggist að mestu á tveimur fermingarferðalögum þar sem hópurinn fer með lest upp til Gautaborgar og það á Ah Stiftsgard sem eru dásamlegar sumarbúðir á vegum sænsku kirkjunnar. Við förum fyrri ferðina að morgni föstudagsins 18. september til sunnudagsins 20. september og þá seinni 30. apríl -2 maí 2027. Þess á milli höfum við fræðslustundir tengdar íslensku messunum og ætlum líka að hafa pizzakvöld, með leikjum og fræðslu. Það er góður hópur sem heldur utan um fræðsluna auk prestsins.Þessar ferðir hafa reynst afar vel, börnin eru alltaf smá stressuð í upphafi ferðar en eru fljót að kynnast og ekki er síður gaman að fleiri íslensk börn búsett í Noregi og Svíþjóð bætast í hópinn. í ferðunum er lögð áhersla á leiki, söng, útvist og íþróttir, helgistundir og fræðslu.Við tökum jafnframt fram að það er enginn skuldbinding að fermast þó að maður komi í ferðina, það er alltaf jákvætt og hollt að fræðast og það má taka ákvörðun eftir ferðina. Kostnaður ætti heldur ekki að stoppa neinn og vill safnaðarnefndin tryggja að öll sem vilja komist með.

Við hvetjum öll íslensk börn sem vilja vera með okkur eða vilja vita meira að skrá sig á [email protected].
P.S. Endilega bjóðið þeim sem eiga börn á fermingaraldri á viðburðinn