6.2.2026

Norðurljós

Norðurljós er stuðningshópur fyrir fólk á öllum aldri sem greinst hefur með krabbamein, sem og aðstandendur þeirra.

Hópurinn hittist í Jónshúsi aðra hverja viku kl. 16:00.
Næsti fundur 18.febrúar. 

Í hópnum er rætt um viðbrögð við greiningu, áhrif á daglegt líf, helstu áskoranir og bjargráð. Hér gefst rými til að deila reynslu, hlusta og styðja hvert annað.
Nordurljos-Instagram-opslag-
Hópurinn er ætlaður þeim sem eru að ganga í gegnum krabbameinsferli, eða hafa gert það, og aðstandendum þeirra – og vilja eiga samtal á sínu móðurmáli með fólki sem skilur aðstæðurnar.

Ekki þarf að skrá sig – öll eru velkom