7.10.2026

Norðurljós

Norðurljós í Jónshúsi er stuðningshópur fyrir fólk á öllum aldri sem hefur greinst með krabbamein, auk aðstandenda þeirra. Sr. Guðni Már Harðarson sendiráðsprestur leiðir hópinn í samvinnu við sjálfboðaliða sem greinst hafa með krabbamein.
Hugmyndin með hópnum er að bjóða uppá vettvang þar sem hægt er að létta á sér, spegla hugann, hlusta og deila reynslu á íslensku í þægilegu andrúmslofti og trúnaði.Tekin verða fyrir þemu sem tengjast því að glíma við krabbamein, t.d. Áfallið og sorgin, bjargráð til að halda áfram, samskipti við vini og fjölskyldu, hvernig má bæta líðan, næring og matarræði og hvernig má temja sér æðruleysi.
Hvenær: Hópurinn hittist annan hvern miðvikudag kl. 16:00 -17:15 í Jónshúsi (Øster Voldgade 12, 1350 Kaupmannahöfn) og verður fyrsta skiptið núna 7. október en þá mun sr. Guðni Már fjalla um Áföll og sorgarviðbrögð.
Verið velkomin í Jónshús