23.4.2013

Hátíð Jóns Sigurðssonar

Hátíð Jóns Sigurðssonar verður haldin í Jónshúsi á sumardaginn fyrsta, 25. apríl 2013, kl. 16.30. Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta verða afhent af því tilefni. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns Sigurðssonar og halda á loft verkum hans og hugsjónum.

Dagskrá:
• Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, setur hátíðina.
• Kórinn Staka flytur íslenska tónlist.
• Uffe Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur, flytur hátíðarræðu.
• Tónlist í flutningi kórsins Stöku.
• Forseti Alþingis afhendir Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta.
• Kórinn Staka flytur lag í tilefni sumardagsins fyrsta.

Léttar veitingar að lokinni dagskrá.
Karl M. Kristjánsson, formaður stjórnar Húss Jóns Sigurðssonar, stjórnar dagskrá.