17.5.2013

Úthlutun fræðimannsíbúðar Húss Jóns Sigurðssonar 2013-2014

Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar, samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn, hefur lokið störfum og úthlutað íbúðinni frá ágústlokum 2013 til ágústloka 2014.

Í nefndinni eiga sæti Anna Agnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, formaður, og Ágúst Einarsson, prófessor og fyrrverandi rektor við Háskólann á Bifröst. Ritari nefndarinnar er Jörundur Kristjánsson, alþjóðaritari á skrifstofu forseta Alþingis.

Alls bárust nefndinni að þessu sinni 32 umsóknir. Átta fræðimenn fá afnot af íbúðinni, sem hér segir:

  • Áslaug Sverrisdóttir, til að vinna verkefni um norræn samskipti um málefni heimilisiðnaðar.
  • Gísli Pálsson, til að vinna verkefni tengt ævisögu Hans Jónatans.
  • Helgi Tómasson, til að vinna verkefni um hönnun tölfræðilíkana og áhættugreiningu á skuldabréfamarkaði og sögu og eðli skuldabréfamarkaðar í Danmörku.
  • Hrafnhildur Schram, til að vinna verkefni um Nínu Sæmundsson, fyrsta íslenska kvenmyndhöggvarann.
  • Jón Ólafsson, til að vinna verkefni um Íslendinga í danska Kommúnistaflokknum og samskipti hans við KFÍ og Sósíalistaflokkinn á Íslandi 1930 til 1968.
  • Sigurður Gylfi Magnússon, til að vinna verkefni er nefnist „Hugmyndafræði hversdagslífsins á 19. öld“.
  • Svanhildur Óskarsdóttir, til að vinna að rannsókn og textaútgáfu á AM 764 4to handritinu sem hefur að geyma veraldarsögu, heilagra manna sögur, jarðteinir og ævintýr og varðveitt er í Árnasafni í Kaupmannahöfn.
  • Tryggvi Gunnarsson, til að vinna að samanburði á þróun réttarheimilda og eftirlits- og athafnaskyldna innan stjórnsýslunnar í dönskum og íslenskum rétti.


Fræðimannsíbúðin í Kaupmannahöfn, tengd nafni Jóns Sigurðssonar, er skammt frá Jónshúsi, í Sankt Pauls Gade 70. Fræðimaður hefur vinnustofu í Jónshúsi.