16.6.2015

Nýr umsjónarmaður Jónshúss

Stjórn húss Jóns Sigurðssonar hefur ráðið Hallfríði Benediktsdóttur í stöðu umsjónarmanns húss Jóns Sigurðssonar frá og með 1. september 2015.

Á þeim tímamótum mun Jón Rafns Runólfsson láta af störfum vegna aldurs eftir 16 ára heilladrjúgt starf.

Starfið var auglýst laust til umsóknar og af fjölmörgum umsækjendum, og mörgum mjög hæfum, var Hallfríði Benediktsdóttur eftir gagngera skoðun og mat boðið starfið.