Aðalfundur Íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn
Íslendingafélagið í Kaupmannahöfn, boðar til aðalfundar félagsins:
fimmtudaginn 29. október 2015, kl. 19:30
Aðalfundurinn verður haldinn í:
Jónshúsi
Øster Voldgade 12
1350 København K
Fundardagskrá verður með hefðbundnu sniði samkvæmt 7. grein samþykkta félagsins.
Samkvæmt 5. grein samþykkta félagsins, hafa einungis skuldlausir félagsmenn frá síðasta reikningsári (2014 til 2015) atkvæðisrétt og kjörgengi á aðalfundi. Hverju árgjaldi fylgir eitt atkvæði. Það verður mögulegt að greiða félagsgjald komandi árs áður en aðalfundurinn hefst til að öðlast atkvæðisrétt og kjörgengi.
Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla um starfsemina á liðnu ári/stjórnartímabili.
3. Reikningar lagðir fram.
4. Lagabreytingar.
5. Kosningar í stjórn og nefndir.
6. Kosning endurskoðanda (tveir og einn til vara).
7. Ákvörðun árgjalda.
8. Önnur mál.
Tillögur að lagabreytingum er hægt að senda á netfangið: info@islendingafelagid.dk, í síðasta lagi 15. október nk.
Allir velkomnir og við vonumst til að sjá sem flesta.
Stjórnin