22.6.2010

Minningarár Jóns Sigurðssonar

Árið 2011 verður þess minnst að 200 verða liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar. Dagskrá minningarársins má finna á heimasíðunni www.jonsigurdsson.is.

Í Jónshúsi verður tekið í  notkun nýtt margmiðlunarefni um Jón Sigurðsson þann 19. júní 2011. Á sama tíma hefjast sögugöngur um slóðir Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn og kynntur verður bæklingur eftir Guðjón Friðriksson sem greinir frá veru Jóns þar.