18.3.2011

Umsóknir um dvöl í íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn 2011-2012

Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar er laus til afnota tímabilið 31. ágúst 2011 til 28. ágúst 2012.

Fræðimenn, sem hyggjast stunda rannsóknir eða vinna að verkefnum í Kaupmannahöfn, geta sótt um afnot af íbúðinni. Hún er í Skt. Paulsgade 70 (skammt frá Jónshúsi) en auk þess hefur fræðimaður vinnuherbergi í Jónshúsi. Íbúðin er þriggja herbergja (um 80 ferm.) og fylgir henni allur nauðsynlegasti heimilisbúnaður. Afnotin eru endurgjaldslaus, en þeim sem fá úthlutað ber þó að greiða hlutdeild í lokaþrifum íbúðarinnar auk afnotagjalds fyrir Internetaðgang, alls kr. 20.000.

Dvalartími í íbúðinni skal að jafnaði vera allt að tveir mánuðir en til greina kemur skemmri tími eða lengri eftir umfangi verkefnis og öðrum atvikum.

Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu Alþingis eigi síðar en þriðjudaginn 12. apríl nk.

Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi ráðgerðrar dvalar sinnar í Kaupmannahöfn, svo og menntun og fyrri störfum. Þá skal taka fram hvenær á framangreindu tímabili og hve lengi óskað er eftir afnotum af íbúðinni. Úthlutunarnefnd ætlast til að dvalargestir nýti úthlutaðan tíma sinn að fullu við störf í Kaupmannahöfn.

Við úthlutun íbúðarinnar er höfð hliðsjón af eftirfarandi atriðum:

  1. Að umsókn sé vandlega unnin.
  2. Að verkefnið verði ekki unnið annars staðar en í Kaupmannahöfn eða nágrenni.
  3. Að sem eðlilegust skipting sé milli kynja og fræðigreina.
  4. Að verkefnið hafi fræðilegt eða hagnýtt gildi og þyki áhugavert.

Þeir sem eru í námi, þar á meðal doktorsnámi, eiga að jafnaði litla möguleika á úthlutun. Tekið er tillit til fjárhags umsækjenda og sitja þeir fyrir sem njóta ekki launa eða styrks meðan á dvöl þeirra stendur. Þá er höfð hliðsjón af því hvort sótt er um dvöl í fyrsta skipti.

Úthlutunarnefnd ráðgerir að ljúka störfum í byrjun maímánaðar.
Umsóknareyðublað um dvöl í fræðimannsíbúð má nálgast með því að smella hér.