5.10.2011

Íþróttaálfurinn og Solla stirða á Norðurbryggju

Sunnudaginn 16. október kl 15:00 verður boðið upp á fyrsta flokks fjölskylduskemmtun á Norðurbryggju / Nordatlantens Brygge í Kaupmannahöfn.

Það eru engin önnur en Íþróttarálfurinn og Solla stirða sem ætla að koma alla leið frá Latabæ, að sjálfsögðu með loftskipinu sínu, og skemmta börnum á öllum aldri í Kaupmannahöfn.

Það er skemmst frá því að segja að í síðustu ferð Íþróttarálfsins og Sollu til Köben (okt 2010) var uppselt og halda þurfti aðra skemmtun. EKKI VERÐUR HÆGT AÐ HALDA AUKA SKEMMTUN Í ÞETTA SKIPTIÐ líkt og í fyrra. Því gildir frumskógarlögmálið, fyrstur kemur fyrstur fær.

Foreldrar / forráðamenn eru hvattir til að taka með sér myndavélar því eftir skemmtunina gefst börnunum tækifæri á að hitta álfinn og Sollu stirðu ásamt því að láta mynda sig með þeim.

Miðasala á http://www.bryggen.dk/   Miðaverð er 135 Dkk.