14.11.2011

Jólamarkaður

Hinn árlegi Jólamarkaður í Jónshúsi verður að þessu sinni á sunnudegi, þann 27. nóvember og hefst kl. 13.00 og stendur til kl. 16.00. Kvennakórskonur selja rjúkandi kaffi og bragðgóðar vöflur.

Eins og venjulega verður til sölu íslenskt malt og appelsín og að þessu sinni verður einnig á boðstólum nýji þjóðardrykkurinn Maltesín !

Þá verður að sjálfsögðu hægt að kaupa Laufabrauð og nýbakaðar kleinur, íslenskt konfekt og annað sælgæti. Handverk af ýmsu tagi, geisladiska og væntanlega margt, margt fleira.

Íslendingafélagið býður upp á  „Barnahorn“ í kjallaranum, þar verður hægt að teikna, lita og svo framvegis.

Enn er hægt að panta söluborð í síma 33137997