17.3.2026

Páskabingó sunnudaginn 22.mars

Páskabingó í Jónshúsi!Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í páskabingó þann 22. mars í Jónshúsi.Til að sem flestir geti tekið þátt verður bingóið haldið í tveimur hollum:
Fyrra holl: kl. 11:00
Seinna holl: kl. 13:30

Aðgangur: 75 kr. (sama verð fyrir börn og fullorðna) – eitt bingóspjald fylgir með.
Aukaspjöld: 50 kr. hvert.
Glæsilegir páskavinningar í boði!

Við viljum koma á framfæri innilegu þakklæti til Icefood, sem er okkar helsti og ávallt trausti stuðningsaðili. Við erum afar þakklát fyrir þeirra aðkomu og stuðning við viðburði félagsins.Tryggðu þér miða hér:
https://islendingafelagidikaupmannahofn.ticketbutler.io/...Veldu annað hvort fyrra eða seinna holl. Við mælum með að tryggja ykkur miða sem fyrst því það selst oft upp hratt!

Léttar veitingar verða til sölu gegn vægu verði.Við hlökkum til að sjá ykkur í páskastemningu!

Kær kveðja,
Stjórn ÍFK