Barnakórinn - skráning
Haustið 2017 stofnaði Sólveig Anna Aradóttir íslenskan barnakór. Kórinn fór rólega af stað, en börnunum fjölgar og ríkir mikil gleði á æfingum.
Að vera með barn í kór er mjög góð leið til að viðhalda íslenskunni og tækifæri á að kynninast öðrum íslenskum börnun. Börnin læra mikið af söngtextum, kynnast íslenskri tónlist og fá tækifæri til að koma fram.
Kórinn er fyrir öll söngelsk börn á aldrinum 5-12 ára. Kennslan fer fram á íslensku og það sama á við um sönginn.
Æfingar eru einu sinni í viku á laugardögum kl.12-13 í Jónshúsi.
Þáttökugjald er 300 krónur á önn, systkinaafsláttur.
Starfið hefst í september.
Skráningareyðublað er að finna hér.
Bestu kveðjur,
Sólveig Anna Aradóttir
solaaradottir@gmail.com