15.6.2017

Þjóðhátíð Íslendinga í Kaupmannahöfn 2017

Kæru Íslendingar og aðrir velunnarar!

Íslendingafélagið í Kaupmannahöfn býður til þjóðhátíðarskemmtunar á Femøren, Amager Strandpark, laugardaginn 17. júní kl. 13:00

Í boði verður fjölbreytt dagskrá fyrir alla aldurshópa, meðal annars íslensk tónlist og fjallkonan stígur á stokk. Þar að auki verða hoppupúðar, Jón Víðis töframaður, andlitsmálun, fánar og önnur skemmtun fyrir börnin, svo eitthvað sé nefnt. Að ógleymdu ýmsu góðgæti, SS-pylsum, íslensku sælgæti og drykkjum. Síðast en ekki síst er það okkur sérstök ánægja að tilkynna að hin vinsæla ballhljómsveit Stuðlabandið mun koma fram á þjóðhátíðinni.

Stjórn Íslendingafélagsins hlakkar til þess að sjá ykkur öll í sólskinsskapi þann 17. júní á Femøren!