Úthlutun fræðimannsíbúðar Húss Jóns Sigurðssonar
Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar, samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn, hefur lokið störfum og úthlutað íbúð fræðimanns á 2. hæð hússins frá ágústmánuði 2026 til sama tíma að ári. Alls bárust nefndinni að þessu sinni 78 gildar umsóknir.
Fræðimenn sem fengu úthlutun eru:
- Anna Dröfn Ágústsdóttir, til að vinna verkefni sem ber vinnuheitið „Nútíminn, konur og kvennaheimili“.
- Anna Magnea Hreinsdóttir, til að vinna að verkefni um sjálfbært leikskólastig á Norðurlöndum.
- Ásdís Rósa Magnúsdóttir, til að vinna verkefni um íslenskar barnabækur í evrópsku samhengi: Kvöldvökur Hannesar Finnssonar, Sumargjöf handa börnum og fleiri rit ætluð börnum á tímum Upplýsingarinnar.
- Erla S. Árnadóttir, til að vinna að fræðiriti um réttarsviðið höfundarrétt.
- Eyjólfur Eyjólfsson, til að vinna að verkefni sem ber heitið „Fallega syngur langspilið“.
- Guðrún Valgerður Stefánsdóttir, til að kanna þróun hugmyndafræði og baráttuhreyfinga fatlaðs fólks á síðari helmingi 20. aldar og tengsl Íslands og Danmerkur í því samhengi.
- Halldóra Jónsdóttir, til að rannsaka þróun á orðfræðilegum gagnagrunni úr dönsku og íslensku lagamáli.
- Hallur Þór Sigurðarson, til að vinna að verkefni um Kaupmannahöfn sem gátt fyrir frumkvöðla frá smærri mörkuðum.
- Kristín Ingólfsdóttir, til að rannsaka áhrif fæðu á lyfjameðferð.
- Már Guðmundsson, til að rannsaka samstarf danskra og íslenskra stjórnvalda í tengslum við fjármálakreppuna á Íslandi 2007–2009.
- Margrét Jónasdóttir, til að undirbúa sjónvarpsþætti um sögu Íslendinga, til sýningar á 1100 ára afmæli Alþingis.
- María K. Jónsdóttir, til að vinna að fræðiriti um heilabilun.
- Matthías Baldursson Harksen, til að rannsaka eiginsveifluhætti Lifshitz svarthola.
- Páll Jakobsson, til að vinna að verkefni sem ber heitið: „Hinn ungi alheimur með augum James Webb geimsjónaukans“.
- Pétur Gunnarsson, til að vinna verki sem ber heitið „Sjáandinn“ um Jón Ólafsson frá Grunnavík.
- Vera Illugadóttir og Bjarndís Helga Tómasdóttir, til að vinna verkefni um kynferðispólitískt flóttafólk í Kaupmannahöfn.
Úthlutunarnefnd skipa dr. Sigrún Helga Lund, prófessor við Háskóla Íslands og formaður nefndarinnar, Bryndís Björgvinsdóttir, dósent við Listaháskóla Íslands, og dr. Þorlákur Axel Jónsson, aðjúnkt við Háskólann á Akureyri. Starfsmaður nefndarinnar er Jörundur Kristjánsson, sviðsstjóri samskipta- og alþjóðasviðs skrifstofu Alþingis.
