Viðburðir

apríl 2026

(Sleppa dagatali)
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    

Norðurljós

  • 15.4.2026, 16:00 - 17:00, 1. hæð: Salur

Ert þú nýgreind/ur með krabbamein?Norðurljós er stuðningshópur fyrir fólk á öllum aldri sem greinst hefur með krabbamein, sem og aðstandendur þeirra.Hópurinn hittist í Jónshúsi aðra hverja viku kl. 16:00.

Í hópnum er rætt um viðbrögð við greiningu, áhrif á daglegt líf, helstu áskoranir og bjargráð. Hér gefst rými til að deila reynslu, hlusta og styðja hvert annað.Hópurinn er ætlaður þeim sem eru að ganga í gegnum krabbameinsferli, eða hafa gert það, og aðstandendum þeirra – og vilja eiga samtal á sínu móðurmáli með fólki sem skilur aðstæðurnar.Ekki þarf að skrá sig – öll eru velkomin.