Opnun sýningar Kerfi sýning á verkum Gunnhildar Þórðardóttur
Listin er alþjóðlegt hreyfiafl og þannig vill listamaðurinn túlka heiminn í gegnum verk sem
vonandi hreyfa við áhorfendum og fá þau til þess að spyrja spurninga varðandi ofneyslu
mannsins, ofhleðslu eða jafnvægi lita eða meta fegurðina og einfaldleikann í að
endurnota/uppvinna efni (skapandi endurvinnsla).

Listaverk Gunnhildar fjalla oft um heimspekileg fyrirbæri en í listaverkum sínum túlkar
hún vangaveltur sínar um lífið og tilveruna auk þess sem hringrásarhagkerfið hefur alltaf
verið ofarlega á baugi í hennar verkum enda mikill umhverfissinni. Öll verkin á sýningunni
Kerfi eru gerð úr endurunnum listaverkum á striga, endurnotuðum rafmagnsvírum,
brotum, hlutum eða afskurði úr hinum ýmsa efniviði t.d. timbri, plasti og málmum.
Gunnhildur Þórðardóttir er myndlistarmaður, skáld og kennari. Hún lauk tvíhliða BA námi
í listasögu og fagurlistum frá Listaháskólanum í Cambridge árið 2003 og MA í liststjórnun
frá sama háskóla árið 2006 og lauk viðbótardiplóma í listkennslu við LHÍ á haustönn
2019. Hún hefur haldið margar einkasýningar meðal annars í Listasafni Reykjanesbæjar,
Kirsuberjatrénu, í Suðsuðvestur, Flóru á Akureyri, í SÍM salnum, Slunkaríki, sal Íslenskrar
grafíkur auk þess að taka þátt í samsýningum í Listasafni Íslands, Hafnarborg, Listasafni
Reykjanesbæjar, Svavarssafni, Norræna húsinu, 002 gallerí og Tate Britain. Hún er
stofnandi listahátíðarinnar Skáldasuðs og Myndlistarskóla Reykjaness. Hún fékk
ljóðaverðlaunin Ljósberann árið 2019 og hefur tekið þátt í fjölda upplestra.