Fréttir og tilkynningar (Síða 25)
Fyrirsagnalisti
Við minnum á:
Prjónaklúbburinn, fimmtudaginn 14. mars kl. 19.00.
Sunnudagskólinn, sunnudaginn 17. mars kl. 11.00.
ICELANDAIRvist, félagsvist föstudaginn 22. mars kl. 19.00. Páskaeggjabingó ÍFK, sunnudaginn 24. mars kl. 14.00.
Baráttusamkoma íslenskra kvenna 8. mars í Jónshúsi
Baráttusamkoma íslenskra kvenna er árlegur viðburður í Kaupmannahöfn. Kvöldin í Jónshúsi eru fjölsótt og kraftmikil og ýmis málefni eru tekin fyrir þar fyrir. Í vor verður kosið til Alþingis og ber dagskráin keim af því.
Dr. Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði við Háskóla Íslands, flytur erindi kvöldsins: " Hrun og heimsmet í kynjajafnrétti? Femínisminn - fimm árum síðar".
Að erindi hennar loknu ræða fjórar þingkonur og einn frambjóðandi hvað áunnist hefur í jafnréttismálum á undanförnum árum og hver þær telji brýnustu viðfangsefnin á næsta kjörtímabili. Þingkonurnar eru:
- Álfheiður Ingadóttir, þingkona Vinstri grænna og fv. heilbrigðisráðherra
- Brynhildur S. Björnsdóttir, frambjóðandi Bjartrar framtíðar í Reykjavík suður
- Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingar og fjármálaráðherra
- Vigdís Hauksdóttir, þingkona Framsóknarflokks
- Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingkona, fv. menntamálaráðherra og fv. varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Íslenski Kvennakórinn í Kaupmannahöfn stendur fyrir söng og sér um veitingasölu. Í boði verða bökur, salat og drykkir.
Nánari upplýsingar veitir undirbúningsnefnd 8. mars:
- Erla Sigurðardóttir: [email protected]
- Gunnhildur Kristjánsdóttir: [email protected]
- Kristín Ása Einarsdóttir: [email protected]
Jónshús, Øster Voldgade 12 ( skammt frá Østerport-lestarstöðinni, þar er einnig næsti hraðbanki).
8. mars: Baráttusamkoma íslenskra kvenna í Jónshúsi
Við minnum á árlega baráttusamkomu íslenskra kvenna í Jónshúsi á föstudaginn 8. mars. Veitingasala Jónshúss opnar kl. 18.30 en dagskráin hefst kl. 19.30.
Afmæli Þjóðminjasafnsins
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS 150 ÁRA
Þjóðminjasafn Íslands var stofnað 24. febrúar 1863 og fagnar því 150 ára afmæli sínu á þessu ári. Af þessu tilefni stendur Lýðháskólinn í Kaupmannahöfn fyrir málþingi í byrjun mars.
Ávarp flytja Per Kristian Madsen, safnstjóri Þjóðminjasafns Dana og Frú Vigdís Finnbogadóttir. Fjöldi sérfræðinga frá Þjóðminjasafni Íslands og Þjóðminjasafni Danmerkur flytja erindi.
Lesa meiraBókmenntakvöld í Jónshúsi
Böðvar kynnir nýjustu skáldsögu sína Töfrahöllina og Hjálmfríður Þöll syngur nokkur lög af diskinum Sofðu rótt í Jónshúsi, fimmtudagskvöldið 28. febrúar.
Dagskráin hefst kl. 20 en salurinn opnar kl. 19.15.
Léttar veitingar til sölu (einungis er tekið við reiðufé - næsti hraðbanki er á Østerport St.)
Aðgangur ókeypis.
Bókmenntakvöldið er skipulagt af PILK (projektgruppen Islandsk Litteratur i København) í samstarfi við Jónshús
Þorrablót ÍFK - Guðsþjónusta - Sunnudagskaffihlaðborð - Sunnudagaskólinn
Þorrablót ÍFK á Norðurbryggju laugardaginn 26. janúar, sjá nánar www.islendingafelagid.dk
Guðsþjónusta í Skt. Pálskirkju sunnudaginn 27. janúar kl. 13.00, sjá nánar www.kirkjan.dk
Sunnudagskaffihlaðborð í Jónshúsi, sunnudaginn 27. janúar kl. 14.00 - 16.00.
Sunnudagaskólinn hefst að nýju sunnudaginn 3. febrúar kl. 11.00 íJónshúsi
Islenskt landslag - Islandske landskaber
Ljósmyndarinn Bo Nico sýnir í Jónshúsi úrval ljósmynda sem að hann hefur tekið á ferðum sínum um landið. Opnun í Jónshúsi föstudaginn 11. janúar kl. 16.00 - 18.00. Sendiherra Íslands í Danmörku Sturla Sigurjónsson opnar sýninguna. Allir velkomnir, léttar veitingar.
Hátíðarguðsþjónusta
Annan í jólum kl. 13.00 í Skt. Paulskirkju.
Prestur: Sr. Kristinn Friðfinnsson
Organisti: Mikael Due
Söngur: Blandaður kór
Stjórnandi: Sigríður Eyþórsdóttir
Dagskrá á aðventu
Aðventusamkoma, Jólabingó, Jólakúlur á Norðurbryggju, Jólatónleikar. Jólaball og Jólamessa.
Aðventusamkoma í Skt. Pálskirkju, laugardaginn 1. desember kl. 16.00. Sjá www.kirkjan.dk
Jólabingó ÍFK í Jónshúsi sunnudaginn 2. desember kl. 14.00. Nánar á www.islendingafelagid.dk
Jólakúlur á Norðurbryggju, sunnudaginn 2. desember kl. 14.00 - 16.00. Sjá www.bryggen.dk
Jólatónleikar Kvennakórsins í Kaupmannahöfn. "Jólin hennar Maríu" sunnudaginn 2. desember kl. 19.30 í Frihavnskirken, Willemoesgade 68. Tónleikarnir fjalla að sjálfsögðu um jólahátíðana en í þetta sinn með sérstaka athygli á Maríu mey. Stjórnandi Sigríður Eyþórsdóttir. Ókeypis aðgangur.
Norrænir jólatónleikar í Helligåndskirken, laugardaginn 8. desember kl. 17.00 Kvennakórinn, STAKA , Grænlenskir og Færeyskir kórar.
Jólaball á Norðubryggju, 9. desember kl. 13.30 og 15.30. Sjá www. bryggen.dk
Jólatónleikar í Skt. Andreas kirkjunni, Gothersgade 148, kl. 19.30 þann 11. desember. Kammerkórinn STAKA. Ensk jólalög, íslenskar og danskar jólaperlur. stjórnandi Stefán Arason. Aðgangur ókeypis
Jólamessa í Skt. Pálskirkju á annan í jólum kl. 13.00. Sjá www.kirkjan.dk
Dagskrá á aðventu
|
Sunnudaginn 25. nóvember kl. 13.00 - 16.00 verður hinn árlegi Jólamarkaður í Jónshúsi. Skreytingar og skartgripir, Íslensk hönnun, laufabrauð, malt og appelsín, kleinur. Íslensk jólahefð, kaffi og vöfflur. Íslensk Jólastemming. Jólamessa í Skt. Pálskirkju á annan í jólum kl. 13.00. Sjá www.kirkjan.dk |
Framundan
Aðalfundur Íslenska Safnaðarins.
Íslenski söfnuðurinn í Kaupmannahöfn heldur aðalfund sunnudaginn 4. nóvember kl. 14.30 í Jónshúsi. Allir velkomnir.
Guðsþjónusta í Sankti Pálskirkju.
Sunnudaginn 4. nóvember kl. 13.00. Prestur sr. Kristinn Friðfinnsson. Organisti Mikael Due. Söngur Íslenski Kvennakórinn í Kaupmannahöfn. Stjórnandi Sigríður Eyþórsdóttir. Messukaffi í Jónshúsi eftir athöfnina.
Jólamarkaðurinn í Jónshúsi.
Jólamarkaðurinn í Jónshúsi verður að þessu sinni sunnudaginn 25. nóvember kl. 13.00 – 16.00. Söluborðapantanir í síma 33137997.
Mið-Ísland, uppistand á Norðurbryggju, Strandgade 91, fimmtudaginn 8/11 kl. 20.
Mið-Ísland hópurinn verður með uppistand á Norðurbryggju fimmtudaginn 8. nóvember kl. 20.00.Sýningarnar hafa hlotið mikla athygli og verðskuldað lof á Íslandi. Í þriðja sinn gefst Íslendingum í Kaupmannahöfn kostur á að skemmta sér með drengjunum. Fram koma: Ari Eldjárn, Bergur Ebbi Benediktsson, Halldór Halldórsson (Dóri DNA), Jóhann Alfreð Kristinsson og Björn Bragi Arnarsson. Eins og flestir er um að ræða frábæra skemmtun, enda hvetjum við fólk til að tryggja sér miða í hvelli - það var uppselt á viðburðinn á Norðurbryggju í fyrra.
Miðasala: 120 kr. í forsölu á http://www.bryggen.dk/ og 150 kr. við innganginn.
Sunnudagskaffihlaðborð.
Íslenskt Sunnudagskaffihlaðborð í Jónshúsi sunnudaginn 4. nóv. Kl. 14.00 – 16.00 STAKA
Framundan
Frá Safnaðarnefnd
Guðþjónusta verður sunnudaginn 7. október kl. 13.00 í Skt. Pálskirkju. Prestur: sr. Birgir Ásgeirsson Söngur: STAKA, stjórnandi Stefán Arason Orgelleikari: Mikael Due. Messukaffi í Jónshúsi á eftir. Almennur fundur safnaðarnefndarinnar í Kaupmannahöfn Laugardaginn 6. okt. n.k. kl. 16.30 verður almennur umræðufundur í Jónshúsi um starf og framtíð safnaðarins í Kaupmannahöfn. Meðal þeirra sem taka til máls eru séra Birgir Ásgeirsson, sendiherra Íslands í Danmörku Sturla Sigurjónsson og Jón Runólfsson í Jónshúsi. Léttar veitingar verða í boði eftir fundinn. Við hvetjum Íslendinga til að sækja fundinn og taka þátt í umræðum.
Framundan í Jónshúsi
Almennur fundur, BASTARD, Bókasafn, Guðsþjónusta, ICELANDAIRvist, Íslenski skólinn, Íslenskunámskeið, Messukaffi, Myndlistarsýning, Prjónaklúbburinn, Svartur á leik, Sunnudagaskóli, Sunnudagskaffihlaðborð
Lesa meiraSkólasetningu Íslenska skólans frestað til laugardagsins 15. september kl. 11.00
Umsóknarfrestur, vegna ráðningar kennara við Íslenska skólann hefur verið framlengdur til 10. september. Sjá auglýsingu hér að neðan.
Skólasetning verður af þessum sökum 15. september næstkomandi kl. 11.00 í Jónshúsi.
Lesa meiraÍslenski skólinn í Jónshúsi skólaárið 2012 - 2013 - Skólasetning 8. september kl. 11.00. Athugið breytt dagsetning.
Skólasetning fer fram í öllum hópum laugardaginn 8. september kl. 11.00. Þar verður farið yfir skráningu, dagskrá, tímasetningar, hugmyndir, skiptingu í hópa og fleira. Námið er ætlað börnum sem eru í 1. – 9. bekk grunnskóla hér í Danmörku. Forsenda fyrir því að taka þátt í námi í skólanum er að íslenska sé móðurmál barnsins og að hún sé notuð á heimilinu. Kennslan fer fram í húsi Jóns Sigurðssonar við Øster Voldgade 12.
Lesa meiraÚthlutun fræðimannsíbúðar 2012-2013
Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar, samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn, hefur lokið störfum og úthlutað íbúðinni frá ágústlokum 2012 til ágústloka 2013.
Alls bárust nefndinni að þessu sinni 39 umsóknir. Sjö fræðimenn fá afnot af íbúðinni.
Lesa meiraVerðlaun Jóns Sigurðssonar forseta
Dr. phil. Pétur M. Jónasson, vatnalíffræðingur og prófessor emeritus, hlýtur Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta. Alþingi veitir verðlaunin í minningu starfa Jóns forseta í þágu Íslands og Íslendinga.
Lesa meira